27/11/2003

Sjónvarpsjúklingurinn!
Ég átti ekki til orð á þriðjudaginn þegar ég náði að horfa á endursýninguna á Survivor frá kvöldinu áður. Þá var ofur sjóræninginn Rupert sendur burt af eyjaskeggjum. Kallinn varð alveg svakalega fúll og mér stóð nú bara ekki á sama á tímabili eftir að hann tapaði keppninni um verðlaunin og svo aftur um friðhelgina. Það var sem sagt svaka plott í gangi og Rupert var sendur heim. Í mjög dramatískum lokaorðum kvaddi hann draum sinn sem nú getur greinilega aldrei orðið að veruleika. Mér finnst svolítið magnað að þessi maður vinnur með unglingum sem eiga einhverra hluta vegna erfitt í sínu lífi og margir þeirra hafa lent í útistöðum við lögvaldið. En miðað við hversu fúll og tapsár hann varð alltaf ef eitthvað fór ekki eins og hann óskaði þá veit ég ekki hversu vel settir þessi unglingar eru undir hans stjórn. Hver veit - kannksi er kallinn ljúfur sem lamb en er bara svangur og þreyttur.

Í kvöld!
Er sýndur lokaþátturinn af Bachelor. Þá koma Andrew og Jen fram og horfast í augu við Kirsten (gellan sem hann sparkaði). Jú jú það er von á mikilli dramatík í kvöld og ég held að heitt verði í kolunum. Á von á 3 öðrum samáhorfendum hingað á Kambsveginn og það eru oft mjög áhugaverðar athugasemdir sem fljúga um stofuna. Þið fáið nánari fréttir af þessu öllu síðar.

Fjárfesting dagsins!
Fór og keypti strauborð í dag. Ég fékk þennan líka fína straubolta í innflutningsgjöf frá einu snilldarpari sem ég þekki en mig vantaði alltaf borðið. Á leið minni um Kringluna í dag ákvað ég að kíkja inn í Byggt og Búið og sjá hvernig markaðurinn væri. Jú rakst á ungan en virðulegan sölumann sem leiddi mig í gegnum leyndardóma strauborða. Ef maður er með gufujárn, á maður að nota gufuborð en ekki tréborð. Ég setti upp ljóskusvipinn og sagðist bara vanta strauborð. Fékk í staðinn mikinn og góðan fróðleiksfyrirlestur um strauborð og gufuna! Já maður lærir alltaf eitthvað nýtt. En eftir skamma stund tók ég mér borð í hönd og skundaði mína leið, stoltur eigandi strauborðsins.

25/11/2003

Húfa - trefill - vettlingar!
Nú er kominn tími á alvöru útivistafatnað, ætli maður að komast heill heilsu úr húsi. Já tími húfunnar hefur runnið upp með tilheyrandi vindi og snjókomu. Hef reyndar ákveðið að fjárfesta í nýrri sköfu í Honduna í dag. Komst að því í gær að það er ekkert mál að gera lífið léttara á þessum tímum. Ein vinkonan benti mér á snilldarlausn sem flest í því að nota geisladiskahlustur sem sköfu en ég hef kosið að fara hefðbundnu leiðina. Hætta að nota Debetkortið og kaupa mér alvöru sköfu! Þetta ástand minnir mig nú á gamlar stundir sem ég átti við póstburð um jólin. Var staðsett á ofurpósthúsinu R-5 sem fyrir þá sem eru ekki inni í lingóinu var á Rauðarárstígnum. Þar áttum við Tjaldurinn góðar stundir við flokkun pósts og útburð. Reyndar var Tjaldurinn kominn á hærra level heldur en ég þegar ég byrjaði - hann var kominn í afgreiðsluna og slapp við helv. útburðinn!

24/11/2003

Upphaf vinnuvikunnar!
Það er komið að því sem við getum aldrei forðast. Mánudagur hefur enn einu sinni litil dagsins ljós. Vaknaði í morgun og leit á Esjuna sem skartaði hvítu í dag. Hondan mín skartar líka hvítu og þá kom minningin um vetrardekkin í huga minn. Ég er sem sagt ekki komin á vetradekk og er að reyna að fresta því til næsta veturs. Þetta plott gekk upp í fyrra og tel ég sjálfa mig vera þokkalega umhverfissinnaða fyrir vikið. Svo er það spurningin hvort maður kemst í og úr vinnun á blessuðu sumardekkjunum - en verður maður ekki að hafa smá spennu í lífinu? Er sem sagt á leiðinni í vinnuna á eftir. Það er alltaf svolítið spennandi svona þegar hálkan kemur - hversu mikið verður að gera í vinnunni.

Survivor!
Missi af Survivor í kvöld - bið kannski karlinn að taka hann upp. Ég bíð spennt eftir því að sjá hver verður látinn taka poka sinn. Ég þoli ekki Skátamömmuna og krullaða gaurinn sem heldur að hann sé flottur. Veit samt ekki alveg með hverjum ég held í þessari syrpu - það kemur í ljós. Einhver speni í USA heldur því fram að Sandra komi til með að vinna - því hún talar spænku og er Latino. Ég gæti reyndar trúað henni til að fara langt en vonandi fer Christa fljótlega burt því hana þoli ég engan veginn. Góðar stundir!

23/11/2003

Galakvöldið!
Skrapp á 50 ára afmælisfagnað kórsins í gær sem var haldinn á Grand Hotel. Þetta var svakalega flott galakvöld og allir skörtuðu sínu fínasta. Herlegheitin byrjuðu á freyðivíni og svo dýrindis humarsúpu. Ég var sú heppna við borðið og fékk 3 humarbita í súpuna mína!! Mér finnst reyndar að hótel og veitingastaðir ættu frekar að kalla þetta Humarsoðsúpu með smá bitum af humri (ef þú er heppinn). Ég verð alltaf svo illa svikið þegar ég fæ svona lítið af humri í súpunni því mér finnst humar svakalega góður. Ekki vorum við svikin af aðalréttinum né eftirréttinum þannig að þetta slapp fyrir horn. Hver kórfélaga á fætur öðrum tróðu upp með söng og sprelli og skemmtu sér allir vel. Undir lok borðhaldsins var þó farið að síga á gæði skemmtiatriðanna sökum (sennilega) þreytu fólks.
Hinir síungu Stefán og Lúdó spiluðu undir dansi og þeir voru hreint út sagt brilljant. Þessi gaurar gætu allir verið feður og jafnvel afar mínir og þeir trölluðu til kl. 03:30 við mikla kæti viðstaddra. Svo staulaðist ég heim og skreið upp í hjá kallinum.

Þynnka!
Get ekki sagt að ég þjáist í dag, en þetta er svona ástand þar sem maður gerir sér fullkomlega grein fyrir öllu áfenginu sem var innbirt. Hef nú gert sem minnst í allan dag og ætla að halda því áfram. Maður á nefnilega aldrei að nota of mikla orku á sunnudögum. Sunnudagar eru til þess að komast í gírinn fyrir vikuna sem er framundan og komast úr gírnum sem maður var í um helgina. Stefni á heitt - sveitt og feitt í kvöldmat og svo að leggjast á meltuna að þvi loknu. Góðar stundir!

20/11/2003

Ofur - heimilstæki!
Ég eignaðist í gær algjört snilldar heimilstæki. Þetta er ekkert annað en " George Foreman - Lean - Mean - Fat reducing - Grilling Machine! Nú get ég steikt allan fjandan og þarf ekki að fitna um gramm! Grillið hallar þannig að öll fita rennur af matnum og eftir situr dýrindis fituskert steik og grænmeti með. Ég lofa ykkur frekari upplýsingum um framgang tækisins eftir að það hefur verið tekið til formlegrar notkunar á heimilinu.

Messias!
Er að fara að syngja á tónleikum í kvöld með kórnum og sinfó. Ekkert smá verk tekið fyrir - bara sjálfur Messias. Það slæma við þetta er að ég hef verið að raula alls konar línur úr verkinu í vinnunni og frítíma mínum en þetta er kannski ekki alveg það poppaðasta sem til er. En mjög skemmtilegt verk og ég hlakka til í kvöld. Seinni tónleikarnir eru svo á laugardaginn og eftir það er svaka Galakvöld á hóteli hér í Reykjavík. Nú er maður að vinna í því að finna rétt kjólinn, réttu skóna og rétta veskið við þetta allt saman. Sem sagt brjáluð gleði framundan hjá Fríðu.

Lokaþáttur Bachelor!
Er auðvitað að drepast yfir því að þurfa endilega að missa af frumsýningu þáttarins í kvöld. Ég veit reyndar hvora gelluna hann velur en mig langar samt að sjá þessi herleg heit. Er að reyna að gera upp hug minn hvort ég láti taka þáttinn upp og horfi á hann að tónleikum loknum. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því hversu illa þetta kann að hljóma, en maður er nú bara mannlegur!

18/11/2003

Survivor!
Ég elska mánudaga! Ástæðan fyrir því að ég elska mánudaga er að þá er ofurþáttaröðin Survivor á dagskrá. Það hræðir mig örlítið að vita af þessar fíkn minni í þessa þætti - en hvað get ég gert að því? Það er reyndar svolítið sorglegt að eyða frítíma sínum í að horfa á hóp af fólki sem fer í taugarnar á manni. Eins og ein gellan þarna - Christa - sem er alveg gjörsamlega óþolandi. Fyrir utan það að vera óþolandi getur hún ekki talað því hún er sennilega með of stóra háls- og nefkirtla. Ég fæ illt þegar ég heyri þessa gellu tala! Hef samt ákveðið að láta hana ekki skemma fyrir mér og mínum áhuga á mannlegu eðli sem kemur augljóslega fram í þessum þáttum.

Vinnan!
Það virðist einhvern veginn sjaldan vera róleg stund í vinnunni. Í dag var ég farin að hlakka til að komast heim, borða kvöldmat og hafa það huggulegt, þegar ég tafðist um 1 og hálfan tíma vegna ástands sem myndaðist. Þoli ekki ástönd - þau myndast alltaf og taka alltaf einhvern tíma. Maður veit það í upphafi ástandsins að þó svo að vaktin sé búin þá er maður ekkert á leiðinni heim á næstunni. Hef mikið velt því fyrir mér upp á síðkastið hvort það sé ekki bara lausn að vinna á kassa í matvöruverslun sem lokar kl. 19 og maður lendir ekki í ástöndum!! Bara svona létt pæling á þunglyndum þriðjudegi! Væri samt meira til í á vinna í snyrtivörudeildinni og troða óþarfa drasli og kremum á fólk heldur en bara sem óbreyttur kassastarfsmaður. Maður ætti kannski að skella sér í svona áhugasviðspróf? Hver veit hvað kæmi úr því?

16/11/2003

Sunnudagur!
Hvað er málið með sunnudaga? Þetta er yfirleitt þunglyndasti dagur vikunnar og enginn nennir að gera neitt. Maður liggur heima í­ sófa og horfir á endursýningar á þáttum liðinnar viku á Skjá einum, drekkur kók og borðar nammi. Allt í einu er farið að dimma og kominn tími til að hafa til kvöldmatinn, til þess eins að halda áfram sjónvarpsglápi yfir kvöldið. Sá reyndar snilldar þátt hjá Fab 5 sem voru að taka í­ gegn alveg vonlausan gaur. Gaurinn var svo mikil subba að það var ógeðslegt - það skrýtna við þetta var að gellan hans var bara sátt og virkaði alveg heil. Þeir gátu hjálpað honum á snilldarhátt eins og þessum kynvillingum einum er lagið. Var reyndar að hugsa um að hringja í­ nokkra villinga um daginn þegar endurbætur á stofunni hér á heimili mínu stóðu yfir. Sumt er bara ekki fyrir gagnkynhneigt fólk að díla við. Þetta reddaðist á mjög flottan hátt og ég er mjög sátt við breytingarnar. En sunnudagskvöldið kallar og best að breyta ekki út af vananum og fara að gera eitthvað.

15/11/2003

Vöfflubakstur!
Ákvað að reyna að sína mínar bestu húsmóðurhliðar í dag og baka vöfflur. Foreldrarnir og tengdó voru væntanleg í kaffi og ég ákvað að sýna hvað í mér býr. Allt gekk vel framan af - keypti tilbúið þurrdeig frá Vilko sem er algjör snilld og skellti vöfflujárninu í samband. Á pakkanum stóð að maður ætti af hafa vöfflujárni vel heitt til að vafflan yrði nú góð. Ég stillti járnið á mesta hitann og jós góðri slummu af deigi á! Beið svo spennt eftir fyrstu vöfflu heimilisins. Ljúfur ilmurinn steig frá járninu og ég vissi að þetta yrði snilld. Í þessum fallegu hugsunum opnaði ég járnið og vaflan klofnaði. Helmingurinn sat fastur í efri hluta járnsins og hinn í neðri hlutanum. Ég hafði gleymt að setja smjör á járnið áður en hamfarirnar hófust! Eftir dúk og disk og mikið skaf tókst mér að ná vöfflunni úr járninu og hóf starfsemi að nýju með nóg af smjöri. Viti menn þetta urðu príðilegustu vöfflur sem ég borðaði sæl og ánægð að erfiðinu loknu!

Afmæli!
Er annars á leiðinni í afmæli hjá Ingu vinkonu í kvöld. Þar verður bara gaman og mikið djammað á ég von á. Geri fastlega ráð fyrir erfiðum degi á morgun og er tilbúin með nauðsynlega hluti til að lifa af þynnkuna. Verkjalyf, kók og nammi! Hef svo eitthvað heitt, sveitt og feitt í matinn annað kvöld og þynnkudagurinn er fullkominn!

12/11/2003

Lífsgleði komin aftur!
Ég hef endurheimt lífsgleði mína eftir suddaleg veikindi síðustu daga. Þegar ég vaknaði í morgun trúði ég því varla - það var komið af því - ég var svöng! Med det samme stökk ég fram í eldhús og fékk mér vænan disk af eðal morgunkorni og strauk sæl yfir mallan að átinu loknu. Síðustu daga hef ég hugsað mikið til þátttakenda í Survivor. Ég er ekki búin að missa mig í hungrinu en ég fór að hugsa um hvernig þessu fólki hlítur að líða í svona miklum hita og hungri. Ég er ekki viss um að ég gæti tekið þátt í svona dæmi. Þú ert svangur, þér er heitt og þar að auki þarftu að búa með fullt af fólki sem þú þekkir ekki neitt og þér þarf að líka vel við það - for your own sake! Nei þetta er ekki fyrir mig. Ég hef oft komið með þá uppástungu við félaga mína um að hafa Survivor 8 - Vatnajökull en mér er allt bent á það að konur í snjógöllum selja ekki eins mikið áhorf og konur í næstum engum fötum. Verð nú að viðurkenna réttmæti gagnrýni þeirra. En hvað með Survivor 8 - Þórsmörk?? Það er nú ekki brjálað mikið af ávaxtatrjám þarna né fiskum o.þ.h. og gellurnar geta verið í eins litlum fötum og þær vilja. Ég held að það sé pottþétt gott sjónvarpsefni þar að finna.

10/11/2003

Andleysi helgarinnar!
Gerði ekki neitt um helgina. Fór í vinnuna á föstudagskvöld og laugardagskvöld og hef eftir það legið heima í­ leiðindar pest. Er nú vonandi að koma til og verð komin á ról á­ morgun. Horfði­ á sennilega verstu mynd sem ég hef séð hingað til. Þetta var mynd með ofurskutlunni og megatröllinu þeim J. Lo og Ralph Fiennes. Maid in Manhattan heitir hún og er í einu orði sagt VOND! Ég held að J. Lo ætti að finna sér feril þar sem hún þarf hvorki að sjást né heyrast tala! Konan fer alveg í­ taugarnar á mér, hún er alltaf eins og getur ekki leikið til að bjarga lífi sí­nu! Það besta er að í­ landi hinna frjálsu (USA) er myndin bönnuð börnum innan 13 ára aldurs vegna orðalags og kynferðislegra aðdróttana. Já það er eins gott að börn sjái ekki þessa skemmandi mynd, þau gætu kannski haldið að þetta væri allt raunverulegt!

The Bachelor!
Er alveg dottin inn í­ þessa seríu af The Bachelor. Gaurinn byrjaði nú ágætlega og leit þokkalega út. Nú þegar endalokin nálgast lí­tur hann út fyrir að vera kominn með alvarleg einkenni streitu og sennilega líka kominn með blæðandi magasár því það er alltaf eins og hann sé í hnút! Nú eru tvær gellur eftir og ég verð að viðurkenna ég held meira með annarri heldur en hinni. Á fimmtudaginn n.k. er svo tvöfaldur þáttur - fyrst Women tell all og síðan lokaþátturinn þar sem gaurinn gerir loks upp hug sinn. Spennandi ekki satt? Svo er ný serí­a byrjuð í­ Bandaríkjunum þar sem gaurinn sem tapaði í­ Bachelorette serí­unni fær að ná sér í kellingu. Hugsið aðeins um­ þetta - gellan sem valdi hann ekki - var ekki valin af fyrsta kallinum og fékk því­ sinn eigin þátt. Nú er hann kominn með eigin þátt líka því­ hann var ekki valinn. Væri ekki hægt að búa til svona best of rejects þátt og hafa jafn mikið af konum og körlum og allir færu glaðir heim? Þá fyrst værum við að tala um gott sjónvarpsefni!

07/11/2003

Helgin framundan!
Það eru nú engin svakaleg plön fyrir helgina. Stefnan í raun og veru bara sett á að sofa og mæta í vinnuna. Á morgun er ég að fara á málþing hjá fagdeild bráðahjúkrunafræðinga sem verður mjög spennandi. Þar fyrir utan fáum við að borða tvisvar yfir daginn og kaffi og með því þar að auki. Sem betur fer þarf ég svo að vinna eftir málþingið og kemst hjá óþarfa drykkju og djammi. Fór fjárhagslega illa eftir aðalfundinn þar sem ég tók frekar óskynsamlegar ákvarðanir í lok kvölds. Af hverju finnst manni það svakalega góð hugmynd að labba heim úr miðbænum eftir nokkur glös? Jú þetta hljómaði eins og svakalega góð hugmynd á þeim tímapunkti og ég arkaði af stað. Áður en ég vissi var ég komin heim og háhæluðu skórnir mínir í frekar alvarlegu ástandi. Ég held að heildar viðgerðarkostnaður á þeim hafi verið syndsamlega nálægt upphaflegu verði skónna! En eitt lærði ég af þessari reynslu og hvet aðra til þess að fara eftir því - takið leigubíl, bæði ódýra þegar á heildina er litið og sennilega einnig öruggara. Komum heil heim!

05/11/2003

Til hamingju með daginn!
Vaknaði við vondan draum í morgun. Það er ekki hægt að komast hjá þessu því þetta gerist á hverju ári. Maður eldist!! Í morgun uppgötvaði ég það til dæmis að ég hef aldrei verið jafn nálægt því að vera þrítug og frá og með deginum í dag. Ég gef nú ekki upp töluna en þið sem kunnið stærðfræði ættuð að geta áttað ykkur á því hversu gömul ég varð í dag.
Mér finnst reyndar að afmælisdagar ættu að vera almennir frídagar. Þú ert að kljást við nógu mikið til þess að þurfa ekki að þola ótillitsamar athugasemndir frá vinnufélögum um aldur þinn. Ekki það að ég hafi orðið fyrir barðinu á neinum í vinnunni - en maður veit aldrei! Mér til heiðurs ætla ég að fá mér öl og njóta þess að vera orðin árinu eldri. Góðar stundir.

04/11/2003

Íslendingar á flugvöllum! Ný tegund þjóðaríþróttar !
Það er alltaf jafn gaman að koma heim frá útlöndum. Hver Íslendingurinn treður öðrum um tær á leiðinni í fríhöfnina því það þurfa allir að verað fyrstir að kaupa bjórinn. Hann gæti nefnilega klárast! Eftir troðninginn í fríhöfninni tekur önnur þjóðaríþrótt við og það er töskufimin. Hversu hratt nærðu að sveifla töskunni þinni af færibandinu og hlaupa að tolgæslunni? Spennan magnast þegar kemur að tollinum. Verð ég tekin í þetta sinn???? Hvað með allt dótið sem ég er að smygla til landisins undir þeim formerkjum að ég vissi ekki betur?? Þessi spenna líður svo út þegar maður hefur komist óáreittur í gegnum tollinn. Þá tekur við önnur krísa - af hverju smyglaði ég ekki meira af varningi til landsins?? Já það er yndislegt að vera Íslendingur á svona stundum.

Áfram Man. Utd !
Í gær lauk pílagrímsferð okkar Ingu vinkonu til London og Manchester. Ferðin heppnaðist svakalega vel og hápunkturinn var auðvitað leikurinn á Old Trafford. Jú jú okkar menn unnu 3 - 0 og við vorum svo heppnar að sitja fyrir aftan mark Portsmoth manna í seinni hálfleik. Stemnigin var gífurleg og við lærum meira að segja söngva á vellinum. Fyrir leikinn skruppum við í gegnum Manchester United safnið og í Megastore sem er á leikvangnum. Eftir það lá leiðin á The Trafford í nokkra öl til að hita upp fyrir leikinn. Þar vorum við einu konurnar sem mættum af fúsum og frjálsum vilja á svæðið. Aðrar konur héngu á öxlum manna sinna og sendu hvorri annarri samúðarbros með hugsuninni "Þú líka". Eftir leikinn var svo hoppað í lestina og brunað til London á ný - ekki nema 3 og hálfur tími!!

Túristar og verslarar dauðans!
Fyrir utan að kíkja á völlinn máluðum við bæinn rauðann í verslun og túristun. Ég held svei mér þá að við höfum gengið alla London fram og tilbaka. Það rigndi auðvitað svolítið hressilega á tímabili en til þess eru regnhlífar. Kíktum á höllina hjá kellingunni og á helstu túristastaði Lundúna. Ætluðum reyndar að labba yfir London Bridge en einhver mótmælandi hafði klifrað upp í byggingakrana við hlið hennar og hótaði að stökkva. Af þessum sökum var öll umferð um brúnna bönnuð þennan dag. Okkur fannst þessi gaur nú frekar glataður að þurfa endilega að mótmæla á þessum degi en svona eru mótmælin.

Gurr og Lou!
Enduðum sunnudaginn á ferð til Crystal Palace þar sem karaoke drottningarnar búa. Skelltum okkur á pöbbinn með þeim og fengum okkur aðeins of marga bjóra. Þaðan lá leiðin heim til Gurrýar og Lovísu þar sem rauðvíninu var skolað niður yfir slúðri og rökræðum. Eins og gefur að skilja var morguninn eftir ekki líkamlega ánægjulegur! Jú síðasti dagurinn leið dagsins ljós og ég skrapp í hádegismat með gömlum vin. Alltaf gaman að hitta vini sína sem búa í útlöndum og sérstaklega þegar maður hefur ekki séð þá í langan tíma. Þetta var algjör snilld. Góður matur og spjallað eins og við höfðum hist síðast í fyrradag. Lenti í smá hrakningum á leiðinni aftur á hótelið og kynntist neðarjarðarlestakerfi Lundúna mjög vel. Man það næst að það er ekki sniðugt að reyna að stytta sér leið og fara út á stöð sem maður þekkir ekki.