Vinnu- og félagsmálaalki!
Hjúkkan er opinberlega orðinn að vinnualka og tók þá meðvituðu ákvörðun að horfast í augu við vandann.  Hún er líka farin að horfast í augu við þá staðreynd að hún er einnig félagsmálaalki sem brýst fram í endalausri þátttöku í kórum og félagsstörfum fyrir fagfélagið.  Formaður þess félags kom að máli við hjúkkuna um daginn og spurði hana hvort hún væri ekki til í að gefa kost á sér í stjórn félagsins.  Auðvitað brosti hjúkkan og sagði hátt og snjallt "JÁ það væri bara gaman."  Sem sagt hafa sumir hlutir ekkert breyst þrátt fyrir miklar breytingar í lífi hjúkkunnar undanfarna daga.
29/03/2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli